Skáldsagan Blóðug jörð er komin út hjá Máli og menningu. Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu með sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. Á augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum og ábyrg fyrir ungum sonarbörnum. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spýr eldi. Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vígt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs. |
höfundur
Tíu bóka, tveggja manna og mín eigin kona. ...
December 2017
Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug
|