Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur
  • Forsíða
  • Um Vilborgu
  • Bækur
    • Undir Yggdrasil
    • Blóðug jörð
    • Ástin, drekinn og dauðinn
    • Vígroði
    • Auður
    • Hrafninn
    • Galdur
    • Eldfórnin
    • Korku saga
  • Fréttir
  • NEW: UNDER YGGDRASIL
  • ENGLISH
  • Forsíða
  • Um Vilborgu
  • Bækur
    • Undir Yggdrasil
    • Blóðug jörð
    • Ástin, drekinn og dauðinn
    • Vígroði
    • Auður
    • Hrafninn
    • Galdur
    • Eldfórnin
    • Korku saga
  • Fréttir
  • NEW: UNDER YGGDRASIL
  • ENGLISH

Vígroði

Picture
,,Hann á von á þér.“ Bárður drepur hraustlega á dyrnar, opnar þær síðan án þess að bíða svars og vísar henni inn fyrir, gengur sjálfur burt hröðum skrefum.  
       Herbergið er stórt og hálfrokkið. Lítils háttar birta fellur inn um örmjóa glugga og á fagurlega útskornu borði á miðju gólfinu er ósandi tólgarkerti í stjaka, nokkrir bikarar og leirkanna. Upp við vegginn gegnt henni eru löng og breið set, breidd feldum og brekánum, á vinstri hönd eldstæði djúpt í þykkum veggnum þar sem logar leika um stóran viðarbút. Op í þekjunni fyrir ofan tekur við reyknum sem stendur upp af stónni, raftarnir svartir af gömlu sóti.
     Ólafur snýr baki í hana og horfir út um glugga sem vísar í norður, út á sjóinn. Á öxlum ber hann dumbrauða skikkju, bryddingarnar á faldinum ofnar gylltu og bláu fléttumynstri. Ljóst, næstum hvítt hárið, er tekið í saman í tagl í hnakkagrófinni.
       ,,Af hverju fórstu?“ Röddin er hörð, þó blandin furðu.
        Auður snöggreiðist. ,,Ég var send burt með smán, enn í blóðböndum eftir fæðinguna, af þér sjálfum.“ Hún hækkar róminn án þess að taka eftir því. ,,Varla hefurðu gleymt því?!“ Hvernig dirfist hann að tala til hennar með þvílíkum hroka? Í einu vetfangi er líkast því að tólf dægur en ekki tólf ár hafi liðið frá því að knörrinn sigldi með hana út mynni Straumár og á brott frá Dyflinni.
Picture
Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.
​
Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju …

Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út 2009, naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Vilborgu í bókmenntaþættinum Kiljunni á RÚV um bókina.


Kaupa bókina hjá Forlaginu

Dómar & umsagnir

Eyja M. Brynjarsdóttir / Druslubækur og doðrantar, bokvit.blogspot.com  
Bókin er feiknavel skrifuð, söguþráðurinn áhugaverður og lýsingar allar þannig að maður sér persónur og atburði ljóslifandi fyrir sér. Ef eitthvað er fannst mér hún sterkari og áhugaverðari en Auður, kannski af því að persónan Auður er nú orðin eldri, reyndari og þroskaðri en stúlkan í fyrri bókinni.

Egill Helgason / Kiljan
Breið og mikil saga … mjög stórt sögusvið og stór saga.

Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Bókin er afskaplega vel unnin og liggja augljóslega miklar rannsóknir og mikil vinna að baki. … Vandlega unnin og vel skrifuð saga um aðdraganda þess að Auður djúpúðga nam land á Íslandi.

Skafti Þ. Halldórsson / Morgunblaðið
Segja má að Vilborg skrifi fornsögur með kvenlegu sjónarhorni. Þetta er átakasaga enda túlkar hún sögulega atburði þar sem tekist er á … Styrkur sögunnar er hin breiða samfélagslýsing og ljóst er sem fyrr að Vilborg hefur unnið heimildavinnuna vel. … Hún byggir á upprunasögu okkar því að flestir eru Íslendingar komnir af þeim persónum sem þarna er fjallað um ef eitthvað er að marka íslensku fornritin.
 
Kolfinna Jónatansdóttir / Spássían
Grípandi og spennandi.
2020  ​© Vilborg Davíðsdóttir