Vilborg

Vilborg Davíðsdóttir hefur sérhæft sig í ritun sögulegra skáldsagna og hlotið fyrir lofsamlega dóma.

Bækur

Vilborg Davíðsdóttir hefur sérhæft sig í ritun sögulegra skáldsagna og hlotið fyrir lofsamlega dóma. Fyrsta bók hennar, Við Urðarbrunn, kom út árið 1993 og framhald hennar, Nornadómur, árið eftir, en þær gerast um aldamótin 900 og segja frá baráttu norsk-írskrar ambáttar fyrir frelsi úr ánauð. Bækurnar hlutu verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur og Íslandsdeildar IBBY og voru síðar gefnar út í einni undir titlinum Korku saga.

Í Eldfórninni, Galdri og Hrafninum leitaði Vilborg aftur til 14. og 15. alda. Sú síðasttalda, sem gerist meðal inúíta og norrænna manna á Grænlandi, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2005.

​Árið 2009 sendi Vilborg frá sér skáldsöguna Auði, fyrsta bindið í þríleik um landnámskonuna Auði djúpúðgu, sem einnig hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Önnur bókin, Vígroði, kom út 2012 og haustið 2017 sú síðasta, Blóðug jörð, sem jafnframt er sjálfstæð saga um flótta Auðar yfir hafið frá Skotlandi til Íslands.

Vilborg sendi árið 2015 frá sér sannsöguna Ástin, drekinn og dauðinn og hefur vakið mikla athygli fyrir að svipta þar burt þeirri bannhelgi sem lengi hefur hvílt á umræðu um dauða og sorg. Þar segir hún frá ferðalaginu með drekanum en svo nefndu þau eiginmaður hennar heilakrabbamein sem dró hann til dauða í blóma lífsins og fyrsta ári sínu sem ekkja. Bókin var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.

Tíunda bók Vilborgar heitir Undir Yggdrasil og kom út 2020. Hún fjallar um Þorgerði Þorsteinsdóttur, sonardóttur Auðar djúpúðgu. Bókin var einnig tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Seinna bindið í sögu völvunnar Þorgerðar, Land næturinnar, er nýkomið út (okt. 2023). Þar heldur Þorgerður í Austurveg en það er heitið sem norrænir menn á víkingaöld höfðu á verslunarleiðinni úr Eystrasalti um stórfljót Austur-Evrópu og allt suður til Konstantínópel, höfuðborgar hins kristna heims.

Ellefta bók Vilborgar, Vetrarbókin – í gegnum myrkrið með goðum og vættum, kom út 22. október 2026.

​Útgefandi er Mál og menning – Forlagið.

Erindi og sýningar

Vilborg hefur um árabil flutt erindi um verk sín og efni þeim tengt. Þar á meðal má nefna landnám Íslands, norræna heiðni og keltneska kristni, fornsagnaarfinn og eddukvæðin, völvur, blót og seið, siglingar norrænna manna niður Dnépur á 10. öld, miðaldamenn á Grænlandi, eldhátíðir Kelta og listina að spinna á landnámssnældu – svo fátt eitt sé talið. Vetrarbókinni fylgir hún úr hlaði með erindi um hvað kom formæðrum okkar og -feðrum að gagni í glímunni við íslenska veturinn, hvernig þau gerðu sér dagamun eftir gangi sólar og tryggðu sér fylgd goða og vætta.

Þá hefur Vilborg einnig flutt erindi um ástvinamissi og sorgarúrvinnslu víða um land og deilt með áheyrendum þeirri reynslu sem sagt er frá í bókinni Ástin, drekinn og dauðinn. Hafa má samband í tölvupósti til að bóka erindi á netfangið vilborg.davids-at-gmail.com

Ferðirnar

Undanfarin ár hefur Vilborg farið með lesendur Auðarþríleiksins í hópferðir til Skotlands, á söguslóðir bóka sinna um Auði djúpúðgu. Ferðalagið er átta dagar og farið er um Hálöndin, út í Suðureyjar og Orkneyjar. Næsta ferð er 4.-12. september 2027.

Vikuna 12.-19. ágúst 2027 verður hún einnig fararstjóri í hópferð á slóðir landnámsfólks sem sigldi til Íslands frá Noregi.