Blóðug jörðBlóðug jörð (2017) er síðasta bókin í þríleiknum um Auði djúpúðgu, konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands, og um leið sjálfstæð saga um siglingu Auðar yfir hafið frá Skotlandi til Íslands.
AuðurAuður kom út árið 2009. Þetta er fyrsta bókin í þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu Ketilsdóttur.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. EldfórninEldfórnin kom út árið 1997. Hún segir frá örlagaríkum atburðum í nunnuklaustrinu í Kirkjubæ á 14. öld. Frumleg og áhrifamikil skáldsaga sem byggð er á traustum heimildum og veitir magnaða innsýn í kaþólska tímann á Íslandi.
|
Ástin, drekinn og dauðinnÁstin, drekinn og dauðinn (2015) er sannsaga sem hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn en um leið jarðbundinn hátt.
Fjöldi fólks um land allt hefur sótt fyrirlestra Vilborgar um gjafir sorgarinnar. HrafninnHrafninn kom út árið 2005. Bókin gerist á Grænlandi á 15. öld, meðal inúíta og norrænna manna og fjallar öðrum þræði um ráðgátuna um örlög norrænu byggðanna þar.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Korku sagaHér eru verðlaunabækurnar Við Urðarbrunn (1993) og Nornadómur (1994) sameinaðar í eina bók. Leiftrandi frásagnargáfa Vilborgar Davíðsdóttur nýtur sín vel í þessari viðburðaríku og spennandi örlagasögu frá upphafsárum Íslandsbyggðar.
|
VígroðiVígroði (2012) er önnur bókin í þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu. Sögusviðið er Suðureyjar og Skotland þar sem Ólafur hvíti Dyflinnarkonungur gerir óvænta innrás árið 866.
GaldurSkáldsagan Galdur kom út árið 2000.
Sögusviðið er Skagafjörður um miðja 15. öld þegar Englendingar réðu lögum og lofum á Íslandi. |
FelustaðurinnFelustaðurinn (2002) er þýðing Vilborgar Davíðsdóttur á skáldsögunni Hiding Place eftir Trezza Azzopardi. Þessi áhrifamikla saga sem gerist í Wales á sjöunda áratugnum var tilnefnd til Booker-verðlaunanna, helstu bókmenntaverðlauna Breta, árið 2000. Hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Kristín Heiða Kristinsdóttir / Morgunblaðið, 2002. |
|