Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur
  • Forsíða
  • Um Vilborgu
  • Bækur
    • Undir Yggdrasil
    • Blóðug jörð
    • Ástin, drekinn og dauðinn
    • Vígroði
    • Auður
    • Hrafninn
    • Galdur
    • Eldfórnin
    • Korku saga
  • Fréttir
  • NEW: UNDER YGGDRASIL
  • ENGLISH
  • Forsíða
  • Um Vilborgu
  • Bækur
    • Undir Yggdrasil
    • Blóðug jörð
    • Ástin, drekinn og dauðinn
    • Vígroði
    • Auður
    • Hrafninn
    • Galdur
    • Eldfórnin
    • Korku saga
  • Fréttir
  • NEW: UNDER YGGDRASIL
  • ENGLISH

Lokabindi sögu Auðar djúpúðgu: Blóðug jörð

12/10/2017

 
Billede
Skáldsagan Blóðug jörð  er komin út hjá Máli og menningu. Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu með sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið.

Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. Á augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum og ábyrg fyrir ungum sonarbörnum. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spýr eldi.

Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vígt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.​


    höfundur

    Tíu bóka, tveggja manna og mín eigin kona.

    ...

    December 2017
    November 2017
    Oktober 2017

    Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug

    RSS-feed

2020  ​© Vilborg Davíðsdóttir