Yðar einlæg þakkar lesendum fyrir frábærar viðtökur skáldsögunnar Blóðug jörð. Hér getur að líta brot úr gagnrýni og umsögnum um bókina sem ummælendur hafa leyft mér að endurbirta hér á vefsíðunni. Bestu bókakveðjur, Vilborg Davíðsdóttir. Kolbrún Bergþórsdóttir & Sigurður Valgeirsson / Kiljan, RÚV, 20. des 2017
„Ég hef ekkert nema gott um þessa bók að segja,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi, um þriðju bók Vilborgar Davíðsdóttur um Auði djúpúðgu sem heitir Blóðug jörð ... „Hún byrjar þessa bók með glæsibrag, með orrustulýsingu, kafli sem virkilega hreyfir við manni og er sterkasti kafli bókarinnar,“ segir Kolbrún og Sigurður Valgeirsson tekur undir það. „Ég er sammála, þessi orrustukafli í byrjun, hann eiginlega stendur upp úr vegna þess að hann er alveg stórglæsilegur.“ Kolbrún segir að margt í bókinni sé sérstaklega vel gert, til að mynda sé vel haldið utan um allar persónur og ljóst að Vilborg hefur kynnt sér þennan tíma vel. Maríanna Clara Lúthersdóttir / Morgunblaðið, des 2017 Blóðug jörð - Fjórar stjörnur Með Blóðugri jörð lýkur Vilborg Davíðsdóttir mögnuðum þríleik sínum um landnámskonuna Auði djúpúðgu ... saman byggja skáldskapurinn og óþrjótandi fróðleikur Vilborgar um tímabilið heillandi heim sem erfitt er að kveðja. Umfram allt eru það þó persónurnar, Auður og samferðafólk hennar, sem rísa upp úr þessum magnaða hafsjó fortíðar og lifa lengi með lesandanum. Andri Kristjánsson / Víðsjá, Rás 1, 23. nóv 2017 Blóðug jörð er spennandi bók ... Persónur eru vel gerðar og það er ekki síst tilfinningaleg dýpt þeirra sem vekur áhuga lesandans og heldur honum föstum við lestur bókarinnar ... Frásagnir af landnámi Ingólfs Arnarsonar og Hjörleifs fóstbróður hans fléttast saman við frásögnina í Blóðugri jörð og veita lesandanum þá tilfinningu að hann sé loksins kominn heim eftir langa dvöl erlendis. Þetta er áhugaverð upplifun vegna þess að hún er í algjörri mótsögn við upplifun persóna bókarinnar sem koma að ströndum framandi lands sem er óralangt í burtu frá heimkynnum þeirra. ... Auður er í raun og veru flóttamaður sem flúði heimalandið vegna stríðsátaka, flúði til Íslands í leit að betra lífi fyrir sig og fjölskyldu sína. Arnþór Helgason / Facebook, des 2017 Það er hreint dásamlegt hvernig þú, Vilborg, vefur órofaheild úr þráðum þeim sem þú spinnur. Blóðug jörð er hreint listaverk þar sem allt gengur upp. Ég óska þér hjartanlega til hamingju með stórvirki þetta. Fáir hafa ofið slíkt dýrmæti úr íslenskum þjóðararfi. Kristín Gísladóttir / Facebook, des 2017 Las Blóðug jörð og tók svo fram fyrri bækurnar og las aftur og líka langt komin aftur með þá síðustu og bestu. Hvílík lestrarnautn, hvílík snilld. Takk, Vilborg! Helgi Magnús Gunnarsson / Facebook, nóv 2017 Þá hef ég lokið við að lesa síðustu bókina af þremur um Auði djúpúðgu. Frábær bók eins og hinar tvær. Ég mæli með að þið kaupið þessar bækur og lesið ef þið hafið einhvern áhuga á að bregða ykkur í tímavél og skoða vel ígrundaða og útpælda mynd af forfeðrum okkar og uppruna og sögu kvenhetjunnar Auðar sem er víst langalangamma x31 okkar allra. Halla Signý Kristjánsdóttir / Facebook, nóv. 2017 Á degi íslenskrar tungu er ég að klára þessa bók. Góður lestur og krefjandi texti með mörgum gömlum íslenskum orðum sem gott er að rifja upp. Barátta Auðar djúpúðgu fyrir sjálfstæði frá karlaveldi og stríðsátökum er gömul og ný saga kvenna í heiminum. Takk fyrir mig, Vilborg Davíðsdóttir. Sigurður Jónsson / Facebook, nóv. 2017 Vilborg nær að skapa þarna sterka mynd af mikilli konu sem stendur styrkum fótum bæði í heimi norrænna hefða, gelískra og kristinna. ... Konu sem berst fyrir sannfæringu sinni og sjálfstæði og reynir að standa keik þrátt fyrir að umhverfið og örlaganornirnar spinni henni vef sem hefði bugað flesta. Vilborgu tekst að flétta þetta inn í svo spennandi og skemmtilega frásögn að hún heldur athyglinni frá fyrstu blaðsíðunni í fyrstu bókinni til síðustu blaðsíðu í þeirri síðustu. Bjarni Jónsson / Facebook, nóv. 2017 Sagan er margbrotin, flókin og, eins og nafnið gefur til kynna, blóði drifin, saga af stórkostlegri konu. Náttúrulýsingar, sjávarhættir og allt sem viðkemur lýsingum af fólki, landslagi, vindáttum og siglingum ótrúlega vel útfært. Vilborg er að sama skapi snilldarrithöfundur. Abelína Hulda Harðardóttir / Facebook nóv. 2017 Bækurnar þrjár um Auði hafa svo sannarlega veitt mér ánægju, svo mikla að ég ætla við fyrsta tækifæri að lesa þær allar þrjár aftur. Reyndar er ég svo hrifin af Vilborgu sem rithöfundi að ég hef lesið allar bækurnar sem hún hefur gefið út. Hrafnhildur Konráðsdóttir / Bókagull-hópurinn, Facebook okt. 2017 Vá, hvað þessar þrjár bækur um Auði djúpúðgu eru mikil listaverk. Ég á eftir að lesa þær allar þrjár aftur. Ef allir rithöfundar vönduðu svona vel til verka sinna, þá væri bókaheimurinn eins og hreinasta paradís. Þúsund þakkir, Vilborg Davíðsdóttir. |
höfundur
Tíu bóka, tveggja manna og mín eigin kona. ...
December 2017
Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug
|