Vilborg Davíðsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð árið 1965. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði, lauk prófi frá Háskóla Íslands í hagnýtri fjölmiðlun árið 1991, BA prófi í þjóðfræði og ensku 2005 og MA í þjóðfræði árið 2011. Meistaraprófsritgerð hennar fjallaði um sagnahefð og þjóðtrú á Hjaltlandseyjum.
Hún starfaði sem blaðamaður, dagskrárgerðarmaður og fréttakona á hinum ýmsu fjölmiðlum frá árinu 1985 til ársins 2000 en hefur síðan þá helgað sig ritstörfum. Að auki hefur hún sinnt stundakennslu í þjóðfræði og kennt skapandi skrif í vinnusmiðjum Iceland Writers Retreat. Vilborg gegndi starfi Jónasar Hallgrímssonar við meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands árið 2016. Hún er þriggja barna móðir og býr í Þingholtunum í Reykjavík.
Fyrsta bók hennar, skáldsagan Við Urðarbrunn, kom út árið 1993 og framhaldið, Nornadómur, árið eftir. Þær gerast um aldamótin 900 og segja frá baráttu ambáttarinnar Korku Þórólfsdóttur fyrir betra lífi og fylgja henni eftir úr ánauð á Íslandi til Heiðabæjar í Danmörku og heim aftur um Suðureyjar og Orkneyjar til frelsis og landnáms á Vestfjörðum. Þessar verðlaunabækur voru endurútgefnar saman undir titlinum Korku saga árið 2001. Sagan af Korku hefur verið notuð við kennslu í grunnskólum og framhaldsskólum allt frá fyrstu útgáfu og notið gríðarlegra vinsælda meðal lesenda á öllum aldri.
Þriðja bók Vilborgar er Eldfórnin (1997), sannsöguleg skáldsaga sem byggir á atburðum sem áttu sér stað í Kirkjubæjarklaustri á 14. öld þegar nunna var brennd þar á báli, og sú fjórða Galdur (2000) sem sömuleiðis byggir á sögulegum atburðum og gerist í Skagafirði á 15. öld þegar Englendingar réðu lögum og lofum á Íslandi. Fimmta skáldsagan, Hrafninn (2005), er byggð á heimildum um lífshætti inúíta og norrænna manna á Grænlandi um miðja 15. öld og örlögum byggðanna sem stofnað var til þar af landnámsfólki frá Íslandi um árið 1000.
Næst kom skáldsagan Auður (2009). Hún gerist um miðja 9. öld og fjallar um Auði Ketilsdóttur sem hefur alist upp á eynni Tyrvist undan Skotlandsströndum og stormasamt hjónaband hennar og Ólafs hvíta, konungs Dyflinnar á Írlandi. Framhald hennar, Vígroði, kom út haustið 2012. Síðasta bókin í þríleiknum um Auði djúpúðgu kom út 2017 og ber titilinn Blóðug jörð. Vilborg lýkur þar þríleiknum um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands með sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær hlutu fádæmagóðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var Auður tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Saga völvunnar Þorgerðar Þorsteinsdóttur, sonardóttur Auðar, er sögð í bókunum Undir Yggdrasil (2020) og Land næturinnar (2023).
Auk skáldsagnaskrifanna hefur Vilborg þýtt þrjár bækur, skrifað fjölda greina og haldið erindi um verk sín um land allt. Sannsagan Ástin, drekinn og dauðinn kom út 2015. Þar segir Vilborg frá vegferð sinni og manns síns með drekanum en svo nefndu þau heilakrabbann sem dró hann til dauða í blóma lífsins árið 2013, og göngu hennar fyrsta árið með sorginni. Á þeim tíma lést einnig tengdamóðir hennar og litlu síðar faðir. Vilborg deilir þar með lesendum því sem sorgin hefur kennt henni: mikilvægi þess að lifa í sátt og viðtekt í núinu og vanda sig við jafnt við að elska, lifa og deyja. Ástin, drekinn og dauðinn hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn en um leið jarðbundinn hátt. Bókin var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.
Hér má lesa viðtal við Vilborgu á vefsíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta um skrif hennar á þríleiknum um Auði djúpúðgu.
Verk hennar hafa verið þýdd á færeysku, þýsku, ensku og arabísku.
Viðurkenningar
2020 Tilnefning til Fjöruverðlaunanna fyrir Undir Yggdrasil
2015 Tilnefning til Fjöruverðlaunanna fyrir Ástina, drekann og dauðann
2009 Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Auði
2005 Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Hrafninn
2003 Viðurkenning Bókasafnssjóðs höfunda
1995 Verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Nornadóm
1994 Viðurkenning Rithöfundasjóðs Íslands fyrir ritstörf
1994 Verðlaun Íslandsdeildar IBBY fyrir Við Urðarbrunn
2015 Tilnefning til Fjöruverðlaunanna fyrir Ástina, drekann og dauðann
2009 Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Auði
2005 Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Hrafninn
2003 Viðurkenning Bókasafnssjóðs höfunda
1995 Verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Nornadóm
1994 Viðurkenning Rithöfundasjóðs Íslands fyrir ritstörf
1994 Verðlaun Íslandsdeildar IBBY fyrir Við Urðarbrunn
Útgáfa erlendis
2014 على السواحل الباردة (Galdur), arabísk þýð. Animar, Egyptaland.
2012 On the Cold Coasts (Galdur). Amazon Crossing, Bandaríkin.
2011 Die Winterfrau (Hrafninn). btb Verlag, Þýskaland.
2004 Der Liebeszauber (Galdur). btb Verlag, Þýskaland.
2004 Nornadómur (Nornadómur). Lærarafélagið. Færeyjar.
2003 Das Feueropfer (Eldfórnin). btb Verlag, Þýskaland.
2003 Við Urðarbrunn. (Við Urðarbrunn). Lærarafélagið. Færeyjar.
2012 On the Cold Coasts (Galdur). Amazon Crossing, Bandaríkin.
2011 Die Winterfrau (Hrafninn). btb Verlag, Þýskaland.
2004 Der Liebeszauber (Galdur). btb Verlag, Þýskaland.
2004 Nornadómur (Nornadómur). Lærarafélagið. Færeyjar.
2003 Das Feueropfer (Eldfórnin). btb Verlag, Þýskaland.
2003 Við Urðarbrunn. (Við Urðarbrunn). Lærarafélagið. Færeyjar.